Sumarmók. Kláraði Saga ástarinnar eftir Nicole Krauss og lánaði hana strax áfram í dag. Bókin er dásamleg og ég hágrét yfir henni. Hins vegar myndi ég gjarnan vilja lesa hana á frummálinu þrátt fyrir að þýðing fyrrverandi samstarfskonnu minnar, Kristrúnar Heiðu Hauksdóttir, sé ein sú besta sem ég hef rekist á nokkru sinni.
Akureyri var æði, sól-afmælisveisla mömmu sem var hæstánægð með ferðatöskuna sem hún fékk fyrir allar reisurnar sem eru framundan. Brauðtertan var æði, þangað til Bryndís ældi henni.
Hún er yfir sig kát með Ástjarnar dvölina, farin til Noregs og ég sé hana ekki fyrr en 18.ágúst. Ég fæ nettan taugara af söknuði ef ég hugsa til þess-só æ dónt. Við náðum þó að smella okkur á RUV þar sem Bryndís fór á stuttan fund vegna þess að hún tekur þátt í Stundinni okkar í vetur. Upprennandi fjölmiðlakona á ferð-auk þess að vera vísindakona. Hún nebblega mátti tæplega vera að því að fara til Noregs vegna skoðunar á flugnavæng í smásjá.